|
|
|
![]()
Vatnsdalur er í um 340 km fjarlægð frá Reykjavík um Hvalfjarðargöng og 160 km stytting, ef siglt er með Baldri frá Stykkishólmi til Brjánslækjar.
Vatnsdalsvatn er 2,2 ferkílómetrar að flatarmáli, 2,7 km
að lengd og um 1 km þar sem það er breiðast. Vatnið mótast af
Vatnsdalnum og er alldjúpt eftir miðjum dalnum, eða yfir 30 metrar þar sem
dýpst er.
Vatnsdalur, júní 1999
©Jónas Guðmundsson
Vatnsdalsá er tvískipt, hún rennur í Vatnsdalsvatn og úr
því aftur til sjávar. Efri hluti árinnar er um að 2,5 km að lengd og í
hana renna nokkrar ár. Austurá, Útnorðursá, sem á upptök sín í Öskjuvatni og
Stóragilsá sem rennur úr Krossavatni um Stóragil.
Að öðru leiti á áin sér upptök norðaustur af Öskjuvatni.
Neðri hluti Vatnsdalsár er mun styttri en sá efri, eða um 1 km á lengd en allvatnsmikil.
Umhverfið er mjög gróið, kjarr frá fjallsbrún til sjávar og grasbalar meðfram mest allri efri ánni, en klappir og há börð meðfram neðri ánni.
![]()
Fluga&Net ehf · Hverfisgata 42· 220 Hafnarfirði · s: 820 2200 · fluga@fluga.net · kt: 440402-3640 ·